Publicidade

Salmos 143

1 Drottinn, heyrðu bæn mína. Svaraðu ákalli mínu, því þú ert réttlátur og stendur við orð þín. 2 Leiddu mig ekki fyrir dóm, því enginn er réttlátur frammi fyrir þér.

3 Óvinir mínir eltu mig og náðu mér. Þeir slógu mig til jarðar og drógu mig inn í myrkrið ég er eins og þeir sem gengnir eru til grafar. 4 Ég eygi enga von, er lamaður af ótta. 5 Ég hugsa um máttarverk þau sem þú vannst fyrir langa löngu. 6 Ég leita þín. Mig þyrstir eftir þér eins og örþrota land, skrælnað af þurrki. 7 Komdu skjótt, Drottinn og bjargaðu mér, því ég er örmagnast! Snúðu ekki við mér bakinu, því þá væri úti um mig. 8 Sýndu mér miskunn þína morgni, því þér treysti ég. Sýndu mér þann veg er ég á ganga, því bæn mín er beðin í einlægni. 9 Frelsaðu mig undan óvinum mínum, Drottinn minn, ég vil flýja í skjól þitt. 10 Hjálpaðu mér gera vilja þinn, því þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um réttan veg.

11 Drottinn, láttu mig lífi halda og leystu mig úr öllum þessum nauðum, því þú ert réttlátur og veist ég hef ekkert til saka unnið. 12 Ég er þjónn þinn. Þú elskar mig og ert mér svo góður! Ryð þú burt þessum óvinum mínum og láttu þá hverfa sem ofsækja mig.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-