Publicidade

Salmos 146

1 Dýrð Guði! , ég vil vegsama hann! 2 Ég vil lofa hann á meðan ég lifi, vegsama hann fram á síðustu stund.

3 Reiddu þig ekki á hjálp valdsmanna, því þeir falla og ekkert verður úr aðstoð þeirra. 4 Þeir munu deyja og andi þeirra líður burt, áform þeirra verða engu. 5 En sæll er maður sem reiðir sig á hjálp Guðs, Guðs Jakobs, sem vonar á Drottin, Guð sinn 6 þann Guð sem skapaði himin og jörð og hafið og allt sem í því er. Hann er Guð sem óhætt er treysta! 7 Hann leitar réttar fátækra og kúgaðra og gefur hungruðum brauð. Hann frelsar fanga, 8 opnar augu blindra, lyftir okinu af þeim sem eru bugast. Drottinn elskar þá sem gera rétt. 9 Hann verndar útlendingana sem sest hafa í landinu og gætir réttinda ekkna og einstæðinga, en ónýtir ráðabrugg vondra manna.

10 Drottinn mun ríkja eilífu. Jerúsalem, veistu Drottinn er konungur eilífu?! Hallelúja!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-