1 Þennan sálm orti Davíð eftir að Drottinn hafði frelsað hann undan óvinum hans, þeirra á meðal Sál konungi.
2 Drottinn – ég elska þig! Þú hefur gert stórkostlega hluti fyrir mig! 3 Drottinn er vígi mitt, þar er ég öruggur. Enginn getur veitt mér eftirför og unnið á mér. Hann er felustaður minn, frelsari og varðborg, kletturinn þar sem enginn getur náð mér! Hann er skjöldur minn. Styrkur hans er eins og uxans sem mundar horn sín í vígahug!