Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 19

1,2 Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans. 3 Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins. 4,5 Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi. 6 Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til renna sitt skeið. 7 Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

8,9 Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa.

Veja também