1 Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert skorta.
2 Hann lætur mig hvílast á grænum grundum og njóta næðis hjá lygnum vötnum. 3 Hann hressir mig og styrkir og leiðir mig réttan veg. Hann hjálpar mér, nafni sínu til vegsemdar.
5 Já, og þú heldur mér veislu frammi fyrir fjendum mínum og þeir geta ekkert við því gert! Þú smyrð höfuð mitt með blessun og annast ríkulega allar mínar þarfir.