3 Raust Drottins fyllir himininn, hún kveður við eins og þruma! 4 Rödd hans hljómar kröftuglega, hún hljómar af mikilleik og tign. 5,6 Hún fellir sedrustrén til jarðar og klýfur hin hávöxnu tré í Líbanon. Raust Drottins skekur fjöllin í Líbanon og hristir Hermonfjall. Hans vegna hoppa þau um eins og ungir kálfar!