Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 3

1 Sálmur eftir Davíð þegar hann flúði frá Absalon, syni sínum.

2 Ó, Drottinn, það eru svo margir á móti mér, svo margir sem gera uppreisn gegn mér. 3 Menn segja Guð muni alls ekki hjálpa mér. 4 En, Drottinn, þú ert skjöldur minn, sæmd mín og von. Þú lætur mig bera höfuðið hátt, þrátt fyrir allt.

5 Ég hrópaði til Drottins og hann svaraði mér frá musteri sínu í Jerúsalem. 6 Þá lagðist ég fyrir og sofnaði í friði. Síðar vaknaði ég öruggur, því Drottinn gætir mín. 7 er ég óhræddur, jafnvel þótt tíu þúsund óvinir umkringi mig! 8 Ég mun hrópa til Drottins: Drottinn, rís þú upp! Bjargaðu mér, þú Guð minn!" Og hann mun slá óvini mína og brjóta tennur illvirkjanna. Hjálpin kemur frá Guði. Blessun hans hvílir yfir þjóð hans.

Veja também