8 Engill Drottins stendur vörð um þá sem óttast hann, og hann bjargar þeim.
9 Finndu og sjáðu hve Guð er góður! Sæll er sá sem leitar hælis hjá honum. 10 Treystið Drottni og sýnið honum lotningu – óttist hann – því að þeir sem óttast hann líða engan skort. 11 Ung ljón búa við skort en þeir sem leita Drottins fara einskis góðs á mis.