Publicidade

Salmos 37

1 Öfundaðu aldrei vonda menn, 2 því fyrr en varir eru þeir fallnir og visna eins og grasið. 3 Treystu heldur Drottni, vertu góðgjarn og sýndu kærleika. Þá muntu búa öruggur í landinu og farnast vel.

4 Þú skalt gleðjast í Drottni og hann mun veita þér það sem hjarta þitt þráir. 5 Fel Drottni framtíð þína, áform þín og verk, og treystu honum. Hann mun vel fyrir öllu sjá. 6 Heiðarleiki þinn og hreinskilni verða öllum augljós, og Drottinn mun láta þig rétti þínum.

7 Hvíldu í Drottni og treystu honum. Bíð þess í þolinmæði hann hefjist handa. Öfunda ekki vonda menn sem vegnar vel.

8 Láttu af reiðinni! Slepptu heiftinni. Vertu ekki svekktur og áhyggjufullur slíkt leiðir ekki til góðs. 9 Þeir sem illt fremja verða þurrkaðir út, en þeir sem treysta Drottni eignast landið og gæði þess. 10 Innan skamms verða guðleysingjarnir á bak og burt. Þegar þú leitar þeirra eru þeir horfnir. 11 En hinir hógværu landið til eignar, þeir munu hljóta blessun og frið.

12,13 Drottinn hlær þeim sem brugga launráð gegn hans trúuðu. Hann hefur þegar ákveðið daginn er þeir verða dæmdir. 14 Óguðlegir hyggja á illt gegn réttlátum, undirbúa blóðbað. 15 En þeir munu farast fyrir eigin sverði og bogar þeirra verða brotnir.

16 Betra er eiga lítið og vera guðrækinn, en óguðlegur og hafa allsnægtir, 17 því óguðlegir munu falla, en Drottinn annast sína trúuðu.

18 Daglega skoðar Drottinn réttlætisverk trúaðra og reiknar þeim eilíf laun. 19 Hann styður þá í kreppunni og heldur lífinu í þeim í hallæri. 20 Vantrúaðir farast og óvinir Guðs visna eins og grasið. Eins og sinu verður þeim brennt, þeir líða burt eins og reykur. 21 Guðlaus maður tekur lán og borgar ekki, en hinn guðrækni er ónískur og gefur með gleði. 22 Þeir sem Drottinn blessar eignast landið, en bannfærðum verður útrýmt.

23 Drottinn stýrir skrefum hins guðrækna og gleðst yfir breytni hans. 24 Þótt hann falli þá liggur hann ekki flatur því Drottinn reisir hann á fætur.

25 Ungur var ég og er ég gamall orðinn, en aldrei ég Drottin snúa baki við guðhræddum manni heldur börn hans biðja sér matar. 26 Nei, guðræknir menn eru mildir og lána og börn þeirra verða öðrum til blessunar.

27 Viljir þú búa við frið og lifa lengi, þá forðastu illt en gerðu gott, 28 því Drottinn hefur mætur á góðum verkum og yfirgefur ekki sína trúuðu, hann mun varðveita þá, en uppræta niðja óguðlegra.

29 Hinir réttlátu landið til eignar og búa þar mann fram af manni. 30,31 Guðrækinn maður talar speki, enda réttsýnn og sanngjarn. Lögmál Guðs er í hjarta hans og hann kann greina gott frá illu.

32 Ranglátir menn njósna um réttláta, vilja þá feiga. 33 En Drottinn stöðvar áform illvirkjanna og sýknar réttláta fyrir dómi.

34 Óttastu ekki, því Drottinn mun svara bæn þinni! Gakktu hiklaust á hans vegum. Á réttum tíma mun hann veita þér velgengni og uppreisn æru. Þá muntu sjá illvirkjunum útrýmt.

35,36 Ég vondan mann og hrokafullan hann þandi sig út eins og laufmikið tré en svo var hann horfinn! Ég leitaði eftir honum, en fann hann ekki framar. 37 En hvað um hinn ráðvanda og hreinskilna? Það er önnur saga! Því góðir menn og friðsamir eiga framtíð fyrir höndum. 38 Illum mönnum verður útrýmt og þeir eiga enga framtíðarvon.

39 Drottinn bjargar hinum guðræknu. Hann er þeim hjálp og skjól á neyðartímum. 40 Þeir treysta honum og því hjálpar hann þeim og frelsar þá frá vélráðum óguðlegra.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-