Publicidade

Salmos 39

1,2 Ég hugsaði: Ég ætla ekki kvarta, segja neitt ljótt meðan óguðlegir heyra til." 3,4 Og ég þagði. En hið innra leið mér verr og verr. Ég hélt aftur af mér, en gremjan magnaðist í mér. lokum gat ég ekki orða bundist: 5 Drottinn, ég aðeins lifa örfá ár í viðbót? 6,7 Ævi mín er lítið lengri en höndin á mér! Og í þínum augum er hún nánast ekki neitt! Maðurinn, hvað er hann? Vindblær, flöktandi skuggi! Ys hans og amstur kemur engu til leiðar. Hann rakar saman sem svo aðrir eyða!"

8 En á hvern vona ég þá? Drottinn, ég vona á þig!

9 Frelsa mig frá syndum mínum svo heimskingjarnir hafi mig ekki spotti.

10 Drottinn, ég þegi því þú hefur talað. Ég vil ekki kvarta, því þú hefur refsað mér.

11 Drottinn láttu refsingu þína taka enda ég þoli ekki meira! 12 Þegar þú hirtir manninn vegna synda hans, þá er nánast úti um hann. Hann er sem mölétin flík, , hann líður burt eins og gufa. 13 Heyr þú bæn mína, Drottinn, hlustaðu á hróp mitt! Vertu ekki hljóður við tárum mínum. Mundu ég er gestur hér, förumaður á þessari jörð eins og forfeður mínir.

14 Miskunna þú mér, Drottinn og læknaðu mig. Lofaðu mér aftur sjá glaðan dag áður en ég dey.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-