Publicidade

Salmos 41

1,2 Guð blessar þann sem hjálpar bágstöddum. Á mæðudeginum bjargar Drottinn honum. 3 Drottinn verndar hann og heldur í honum lífinu. Hann lætur hann njóta sæmdar og frelsar hann frá óvinum hans. 4 Drottinn annast hann á sóttarsæng, veitir honum hvíld og hressing.

5 Ég bað: Drottinn, miskunnaðu mér. Læknaðu sál mína því ég hef syndgað gegn þér."

6 Óvinir mínir biðja mér bölbæna og segja: Bara hann deyi sem fyrst svo allir gleymi honum!" 7 Sumir sem heimsækja mig í veikindunum eru þykjast. Innst inni hata þeir mig og líkar vel ég er sjúkur. Þegar út er komið baktala þeir mig. 8 Hatursmenn mínir hæða mig og spotta. Þeir skrafa og pískra hvað gera skuli þegar ég er allur 9 Þetta er banvænt, hvað sem það er," segja þeir, honum mun aldrei batna."

10 Og besti vinur minn, hann snerist líka gegn mér, maðurinn sem ég treysti svo vel, hann sem át við borð mitt. 11 En, Drottinn, yfirgef mig ekki! Miskunnaðu mér og læknaðu mig svo ég geti endurgoldið þeim! 12 Ég veit þú elskar mig og þú munt ekki láta óvini mína hlakka yfir mér. 13 Vegna sakleysis míns hefur þú varðveitt mig og lætur mig lifa með þér eilífu.

14 Lofaður Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-