Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 49

1-3 Hlustið háir og lágir, ríkir og fátækir. Allir heimsbúar hlýðið á. 4 Ég tala til ykkar vísdómsorð. 5 Með undirleik hörpu kveð ég um hyggindi, veiti svör við spurningum lífsins: 6 Láttu ekki ógæfuna hræða þig, óvini sem umkringja þig með illsku! 7 Auðæfum sínum treysta þeir og stæra sig af miklu ríkidæmi 8 en þó gæti enginn þeirra greitt Guði lausnargjald fyrir bróður sinn, keypt hann lausan. 9,10 Sál mannsins er dýrmætari en svo hún verði keypt fyrir . Auður alls heimsins hrekkur ekki til kaupa einum manni líf og forða honum frá gröfinni.

11 Þið auðmenn og vitringar og aðrir sem hreykið ykkur hátt, þið munuð farast eins og aðrir menn. Þið hafið enga kröfu til lífsins fremur en fífl og fáráðlingar. Þið verðið eftirláta öðrum auð ykkar. 12 Hús og eignir bera nöfn ykkar rétt eins og þið ætlið búa þar eilífu! 13 Nei, maðurinn verður deyja. Hann er eins og skepnurnar, þrátt fyrir frægð sína og frama. 14 Slík verða afdrif hinna hrokafullu en samt mun þeirra getið með virðingu þegar þeir eru dauðir.

15 En þeir ekki umflúið dauðann. Þegar upp er staðið verða hinir vondu þjóna hinum góðu. Vald auðsins er þeim gagnslaust í dauðanum og ekki taka þeir auðæfi sín með sér.

16 En hvað um mig? Guð mun leysa sál mína frá dauða og frelsa mig úr helju.

17 Vertu ekki gramur þótt einhver verði ríkur og reisi sér glæsihöll. 18 Ekkert af því mun hann taka með sér í gröfina, ekki einu sinni frægð sína! 19 Í lifanda lífi telur hann sig heppinn og heimurinn klappar honum lof í lófa, 20 en þó deyr hann eins og aðrir og hverfur inn í myrkrið. 21 sem elskar eigin lofstír deyr eins og skepnan, þrátt fyrir frægð sína og frama.

Veja também