1 Þennan sálm orti Davíð 2 eftir að Natan spámaður hafði birt honum dóm Guðs vegna hórdóms hans með Batsebu og morðsins á Úría eiginmanni hennar.
10 Og þegar þú hefur refsað mér, þá gefðu mér gleði mína á ný. 12 Skapaðu í mér nýtt og hreint hjarta, ó Guð! Gefðu mér þinn heilaga anda svo að ég hugsi rétt og þrái það sem gott er. 16,17 Frelsaðu mig frá dauðans háska, ó Guð minn. Þú einn getur frelsað mig! Leyf mér að syngja um miskunn þína, Drottinn. Opnaðu varir mínar svo að ég megi vegsama þig!