1,2 Drottinn, miskunna þú mér, því að liðlangan daginn sækja óvinir mínir að. 3 Fjandmennirnir ryðjast fram, fjölmennt lið, þeir ætla að drepa mig.
4 Þegar ég er hræddur, set ég traust mitt á þig. 8 Þeir halda sig sleppa við refsingu, og komast undan, en Drottinn, láttu þá fá makleg málagjöld, annað er ekki réttlátt.
11 Með hjálp Guðs mun ég lofa orð hans, já vissulega mun ég lofa orð hans.