1 Allur heimurinn gleðjist með Guði! 2 Lofið nafn hans, það er undursamlegt! Segið öllum frá máttarverkum hans!
3 Guð, hversu undursamleg eru verk þín! Máttur þinn er stórkostlegur! Ekki er að furða þótt óvinir þínir smjaðri fyrir þér. 4 Lofaður sért þú um víða veröld!