Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 66

1 Allur heimurinn gleðjist með Guði! 2 Lofið nafn hans, það er undursamlegt! Segið öllum frá máttarverkum hans!

3 Guð, hversu undursamleg eru verk þín! Máttur þinn er stórkostlegur! Ekki er furða þótt óvinir þínir smjaðri fyrir þér. 4 Lofaður sért þú um víða veröld! 5 Komið og sjáið máttarverk Guðs! Mikil eru þau undur sem fólk hans fær sjá og reyna. 6 Hann opnaði þeim veg í gegnum hafið! Þar gengu þeir yfir þurrum fótum. Hvílík gleði og fögnuður ríkti þann dag!

7 Drottinn mun ríkja eilífu vegna máttar síns. Hann virðir vandlega fyrir sér mennina. Engir uppreisnarmenn þora láta á sér bæra.

8 Sérhver maður lofi Drottin og vegsami nafn hans. 9 Hann gaf okkur lífið og hann verndar frá hrösun. 10 Þú, ó Guð, hreinsaðir okkur í eldi eins og silfur er hreinsað. 11 Þú hefur fjötrað okkur og lokað inni og lagt á okkur byrðar. 12 Þú lést hersveitir troða okkur fótum og við urðum fara gegnum eld og vatn, en lokum leiddir þú okkur út og inn í yndislegt land.

13 kem ég í helgidóm þinn, fórna og efni þannig heit mitt. 14 Manstu, þegar ég var í nauðum staddur, þá gaf ég þér heit? 15 ber ég fram fórn mína: Hrúta, naut og kiðling. Megi reykurinn af fórnum þessum stíga upp til þín.

16 Komið og hlustið, þið sem óttist Drottin, og ég skal segja ykkur hvað hann hefur gert fyrir mig!: 17 Ég hrópaði til hans um hjálp, og víst bjó lofgjörðin undir! 18 En fyrst játaði ég synd mína, annars hefði ég ekki fengið svar. 19 En hann heyrði bæn mína og hlustaði, gaf gaum því sem ég sagði.

20 Lof Guði! Hann vísaði ekki bæn minni á bug tók miskunn sína frá mér.

Veja também