Publicidade

Salmos 69

1,2 Frelsaðu mig, ó Guð, því vatnið hækkar sífellt 3 og ég sekk æ dýpra í þessa botnlausu leðju. 4 Ég er útgrátinn og örmagna, hálsinn þurr og sár og augun þrútin. Góði Guð, bjargaðu mér! 5 Þeir eru margir sem hata mig ástæðulausu, fjöldi manna sem brugga mér banaráð. Þó er ég saklaus. Þeir heimta ég bæti það sem ég hef ekki brotið!

6 Ó, Guð, þú þekkir heimsku mína og syndir. 7 Drottinn Guð, þú sem ræður hersveitum himnanna, láttu mig ekki verða til hneykslunar þeim sem treysta þér. Þú Guð Ísraels, forðaðu mér frá því valda þeim vonbrigðum, 8 þó svo þín vegna ég hæddur og smáður. 9 Jafnvel bræður mínir sniðganga mig! 10 Guð, þú ert í huga mér öllum stundum og um musteri þitt hugsa ég. Og vegna þess ég held uppi málstað þínum, hata þeir mig, rétt eins og þig. 11 Ég hef fastað og iðrast frammi fyrir þér, en þeir hæddu mig engu síður.

12 Ég klæddist hærusekk tákni auðmýktar og iðrunar og þá ortu þeir um mig níðvísu! 13 Ég er nýjasta fréttin í bænum og jafnvel rónarnir spotta mig! 14 En ég held áfram biðja til þín, Drottinn, og gefst ekki upp, því þú hlustar! Svaraðu mér með blessun þinni og miskunnaðu mér.

15 Dragðu mig upp úr leðjunni, Drottinn, ég finn ég er sökkva! Forðaðu mér frá óvinum mínum, úr þessum hræðilega pytti! 16 Láttu ekki flóðið taka mig, hringiðuna svelgja mig! 17 Ó, Drottinn, svaraðu bænum mínum, vegna gæsku þinnar og náðar við mig. 18 Snúðu ekki við mér bakinu, því ég er í nauðum staddur! Flýttu þér! Komdu og frelsaðu mig! 19 Drottinn, komdu og bjargaðu mér! Leystu mig undan ofríki óvina minna. 20 Þú sérð þá og þekkir háðsglósur þeirra, hvernig þeir níða mig niður.

21 Háðsyrði þeirra hafa sært mig djúpu sári og andi minn örmagnast. Ó, ef einhver hefði sýnt mér samúð og einhver viljað hugga mig! 22 Þeir færðu mér eitraðan mat malurt og edik við þorstanum. 23 Verði gleði þeirra sorg og friður þeirra skelfingu. 24 Myrkur komi yfir þá, blinda og ringulreið. 25 Reiði þín upptendrist gegn þeim og eldur þinn tortími þeim. 26 Leggðu hús þeirra í rúst svo þar búi enginn framar. 27 Því þeir ofsækja þann sem þú hefur slegið og hlæja kvöl þess sem þú hefur gegnumstungið. 28 Skráðu hjá þér allar syndir þeirra, láttu enga gleymast. 29 Strikaðu þá út af listanum yfir þá sem lifa, leyfðu þeim ekki njóta lífsins með réttlátum.

30 Ó, Guð, frelsaðu mig úr þessari neyð! Ég veit þú munt bjarga mér! 31 Ég lofa Guð í ljóði, mikla hann með lofsöng. 32 Það mun gleðja hann meira en margs konar fórnir. 33 Hinir auðmjúku munu sjá Drottinn hjálpar mér og þeir munu gleðjast. , gleðjist, þið sem leitið Guðs! 34 Því Drottinn heyrir hróp hinna snauðu, og snýr ekki við þeim bakinu.

35 Himinn og jörð, lofið Drottin, og hafið og allt sem í því er! 36 Því Guð mun frelsa Jerúsalem og endurreisa borgirnar í Júda og þjóð hans mun búa við öryggi. 37 Börnin munu erfa landið og þeir sem elska Drottin njóta þar friðar og velgengni.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-