Publicidade

Salmos 73

1 Guð er góður við Ísrael! Hann er góður þeim sem hreinlyndir eru. 2 En hvað um mig? Ég var kominn á ystu nöf. Það munaði engu mér skrikaði fótur og ég félli! 3 Ég hafði fyllst gremju út af velgengni hinna hrokafullu. 4 Þeim virtist ganga allt í haginn. Þeir eru hraustir og sterkir. 5 Þeir virðast lausir við alla erfiðleika og áföll sem henda aðra. 6 Hrokinn er eins og glitrandi festi um háls þeirra og þeir eru sveipaðir ofríki eins og skikkju. 7 Þeir belgjast út af offitu og augu þeirra tútna af ágirnd. 8 Þeir hæðast Guði og hafa í hótunum við fólk hans. Hroki er í hverju orði. 9 Þeir stæra sig gegn himninum og blaðrið í þeim heyrist um allar jarðir.

10 Þjóð Guðs er orðlaus og gleypir í sig boðskap þeirra. 11,12 Guð virðist láta þá í friði," segir fólk, , þessir guðleysingjar lifa áhyggjulausu lífi og verða ríkari með hverjum degi."

13 Hef ég eytt tíma mínum til einskis? Er til nokkurs kappkosta lifa heiðvirðu lífi? 14 Allt sem ég hef upp úr því er erfiði og strit alla daga, og æ! 15 Ef ég talaði með þessum hætti, væri ég bregðast lýð þínum. 16 En þetta er samt svo torskilið velgengni þeirra sem hata Drottin. 17 En dag einn fór ég í helgidóm Drottins til íhuga, og þá hugleiddi ég framtíð þessara vondu manna. 18 vegur sem þeir ganga mun enda í skelfingu. Skyndilega mun þeim skrika fótur og þeir hrasa og steypast fram af brúninni, niður í hyldýpið. 19 Það verður snöggur endir á allri gæfunni", skyndileg tortíming. 20 Líf þeirra líkist draumi. Þeir munu vakna til veruleikans, eins og þegar menn vakna af draumsvefni og sjá allt var ímyndun ein!

21 Þegar ég skyldi þetta, fylltist ég hryggð og leið illa. 22 Ég hve heimskur og fávís ég var. Ég hlýt vera eins og skynlaus skepna í þínum augum, Guð! 23 En samt elskar þú mig! Þú heldur í hægri hönd mína og varðveitir mig.

24 Og áfram munt þú leiða mig með vísdómi þínum og speki. 25 Hvern á ég á himnum nema þig? Og þú ert sem ég þrái mest á jörðu! 26 Heilsu minni hrakar og hjarta mitt þreytist, en Guð lifir! Hann er styrkur minn, ég tilheyra honum eilífu.

27 Drottinn, þeir sem hafna þér munu farast, því þú eyðir þeim sem þjóna öðrum guðum.

28 En hvað um mig? Ég vil komast eins nálægt Guði og ég get! Ég hef kosið trúa á Drottin. Hann er skjól mitt. Ég vil vitna um það í allra áheyrn margsinnis hefur hann bjargað mér á undursamlega hátt.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-