Publicidade

Salmos 75

1,2 Þökk þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.

3 ," svarar Drottinn, og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum! 4 Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!"

5 Ég sagði hinum hrokafullu láta af drambi sínu og illmennunum hætta sínum ögrandi augnagotum, 6 láta af þrjósku og hroka. 7 Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum, 8 allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan. 9 Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn! 10 En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi. 11 Styrkur hinna óguðlegu verður engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_12-11-46-