Publicidade

Salmos 79

1 Guð, hefur þú ekki heyrt: Heiðingjarnir hafa ráðist inn í land þitt! Musterið hefur verið saurgað og Jerúsalem er rjúkandi rúst! 2 Lík þinna manna liggja á bersvæði og eru fæða hræfugla og villidýra! 3 Óvinirnir hafa stráfellt íbúa Jerúsalem, svo allt flýtur í blóði. Enginn er eftir til grafa hina föllnu. 4 Nágrannaþjóðirnar hæða okkur og spotta og ausa svívirðingum.

5 Drottinn, hversu lengi ætlar þú vera okkur reiður? eilífu? Á vandlæti þitt brenna þar til öll von er úti?! 6 Úthelltu heldur reiði þinni yfir guðlausu þjóðirnar, ekki okkur! , yfir konungsríkin sem ekki ákalla nafn þitt. 7 Það eru þau sem hafa útrýmt þjóð þinni og ráðist inn á hvert heimili. 8 Við biðjum þig: Láttu okkur ekki gjalda löngu drýgðra synda forfeðranna! Miskunnaðu þig yfir eymd okkar, því við höfum verið troðnir niður í svaðið! 9 Hjálpaðu okkur, því þú ert frelsari okkar! Hjálpaðu okkur, vegna þíns eigin orðstírs! Frelsaðu okkur og fyrirgefðu okkur syndirnar. 10 Hvers vegna heiðnu þjóðirnar hæða okkur og segja: Hvar er þessi Guð ykkar?!" Hefndu ófara lýðs þíns svo eftir verði tekið! 11 Hlustaðu á stunur fanganna og hinna dauðadæmdu. Sýndu mátt þinn og frelsaðu þá. 12 Drottinn, láttu þá sjöfalt endurgjald, þessar þjóðir sem hæða þig og spotta!

13 Þá munum við, þjóð þín og gæsluhjörð, lofa þig eilífu og þakka mikilleika þinn frá kynslóð til kynslóðar.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-