Publicidade

Salmos 82

1 Guð stígur fram á himnum. Hann segir: Réttur er settur!" Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu.

2 Hve lengi ætlið þið, dómarar, sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið draga taum hinna ranglátu? 3 Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu, 4 Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu! 5 Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls. 6 Ég hef kallað ykkur guði" og syni hins hæsta", 7 en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum.

8 Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-