4 Hann mun skýla þér undir vængjum sínum. Þar muntu finna öruggt skjól! Hann hefur lofað að vernda þig og frelsa. 5 Nú þarftu ekki lengur að óttast ógnir myrkursins, né örina sem þýtur að morgni. 6 Heldur ekki drepsótt næturinnar né skelfingu um hábjartan dag.
15 Þegar þú kallar á mig, svara ég þér. Ég er með þér á hættustund, frelsa þig og held uppi heiðri þínum.