Publicidade

Salmos 92

1,2 Gott er þakka Drottni og lofsyngja Guði hinum hæsta. 3 Á hverjum morgni segi ég við Drottin: Þökk þér fyrir miskunn þína!" Og á kvöldin fagna ég yfir trúfesti hans. 4 Syngið honum lof og leikið undir á hörpu og gígju. 5 Drottinn, mikið ertu mér góður. Ég syng af gleði! Er nokkur hissa á því?

6 Ó, Drottinn, mikil eru máttarverk þín! 7 Þeir einir sem ekki nenna hugsa, fara þeirra á mis. Heimskingjarnir skilja ekki 8 hinir óguðlegu sem í bili virðast hafa það gott munu afmáðir eilífu. 9 En Drottinn, þú lifir eilífu, hátt upphafinn á himnum, 10 meðan óvinir þínir illgjörðamennirnir tvístrast.

11 Ég finn styrk og kraft, en Drottinn, allt er það þér þakka! Blessun þín hefur endurnært mig. 12 Ég heyrði dóminn yfir óvinum mínum og þegar þeim var eytt. 13 En hinir réttlátu munu blómgast líkt og ávaxtatré, vaxa eins og sedrustrén í Líbanon.

14 Því þeir eru gróðursettir í garði Drottins og njóta umhyggju hans. 15 Jafnvel á elliárunum bera þeir ávöxt og eru sem laufguð tré. 16 Þeir bera vitni um réttlæti Drottins, hann er skjól og vernd og allt sem hann gerir er gott!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-