Publicidade

Salmos 94

1,2 Drottinn, þú ert Guð hefndarinnar Guð sem réttir hlut þeirra sem ranglæti eru beittir. Láttu dýrð þína birtast. Rís upp, þú dómari jarðar. Refsaðu ofstopamönnum fyrir illverk þeirra. 3 Drottinn, hve lengi eiga óguðlegir hrósa sigri? 4 Þeir eru springa af monti! Hlustaðu á grobbið í þeim! 5 Drottinn, líttu á hvernig þeir kúga þjóð þína og kvelja fólkið sem þú elskar. 6,7 Þeir myrða ekkjur og munaðarleysingja og líka útlendinga sem hér hafa sest . Drottinn sér þetta ekki," segja þeir, hann lætur sér fátt um finnast."

8 Heimskingjar! 9 Haldið þið Guð blindur og heyrnarlaus, hann sem skapar bæði augu og eyru! 10 Hann refsar þjóðunum og er komið ykkur. Enginn hlutur er honum hulinn. Eins og hann viti ekki hvað þið hafið gert!

11 Drottinn þekkir skammsýni og hégómleika mannanna 12,13 og því agar hann okkur til góðs. Það gerir hann til þess við göngum á hans vegum og gefumst ekki upp í mótlæti. 14 Drottinn afneitar ekki lýð sínum yfirgefur þjóð sína. 15 Dómar hans eru réttlátir og fylgjendur hans fagna af hreinu hjarta.

16 Hver vill vernda mig fyrir illgjörðamönnum? Hver vill vera skjöldur minn? 17 Án Drottins væri ég dauðans matur. 18 Ég æpti: Drottinn, ég er hrapa!" og af gæsku sinni frelsaði hann mig. 19 Drottinn, þegar efasemdir ásækja mig og hjarta mitt er fullt af angist, þá gefðu mér frið þinn og endurnýjaðu gleði mína.

20 Vilt þú vernda og viðhalda spilltri valdsstjórn sem hallar réttlætinu? Leyfir þú slíkt? 21,22 Hefur þú þóknun á þeim sem dæma saklausa til dauða? Nei! Drottinn, Guð minn, er vígi mitt, kletturinn þar sem ég leita skjóls. 23 Guð lætur syndir óguðlegra koma þeim sjálfum í koll. Illverk þeirra verða þeim falli.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-