Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 96

1 Syngið Drottni nýjan söng! Syngið þann söng um alla jörðina! 2 Syngið um velgjörðir hans, lofið nafn hans. Kunngerið hjálpráð hans dag eftir dag.

3 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, allra þjóða. Kunngerið öllum dásemdarverk hans. 4 Því Drottinn er mikill og mjög vegsamlegur. Hann einn er Guð sem rétt er tilbiðja. 5 Þjóðirnar tilbiðja falsguði eina, en okkar Guð hefur skapað himininn! 6 Hann er umvafinn heiðri og dýrð, styrkur og fegurð fylla musteri hans.

7 Þið kynkvíslir jarðar, játið Drottni heiður og dýrð.

8 Heiðrið hann eins og skyldugt er! Berið fram fórnina og tilbiðjið hann. 9 Tilbiðjið Drottin í heilagleik og heiðri. Allur heimurinn skjálfi fyrir augliti hans.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também