Publicidade

Salmos 107

1 Þakkið Drottni, því hann er góður og miskunn hans varir eilífu. 2 Hafi Drottinn frelsað þig, þá segðu frá því! Segðu öðrum frá því hann hafi frelsað þig frá óvinum þínum.

3 Hann leiddi hina útlægu heim frá ystu endimörkum jarðarinnar. 4 Þeir ráfuðu heimilislausir um eyðimörkina, 5 hungraðir og þyrstir og niðurlotum komnir. 6 Drottinn, hjálpaðu okkur!" hrópuðu þeir, og hann svaraði bæn þeirra! 7 Hann leiddi þá í öruggt skjól, til byggilegrar borgar. 8 Ó, þetta fólk vildi lofa Drottin fyrir miskunn hans og öll hans dásamlegu verk, 9 því hann svalar þyrstri sál og mettar hungraðan gæðum.

10 Hverjir eru þessir sem sitja í myrkri og skugga dauðans, þjáðir af eymd og volæði? 11 Þeir gerðu uppreisn gegn Drottni, fyrirlitu hann, hinn hæsta Guð. 12 Þess vegna beygði hann þá með mæðu. Þeir hrösuðu og enginn gat hjálpað þeim á fætur. 13 Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim! 14 Hann leiddi þá út úr myrkri og skugga dauðans og braut fjötra þeirra. 15 Þeir skulu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans miskunnarverk! 16 Því hann mölvaði hlið dýflissunnar og braut sundur rimlana.

17 Sumir kölluðu yfir sig ógæfu með heimsku sinni. 18 Loks bauð þeim við öllum mat. Þeir sáu ekkert framundan nema dauðann. 19 Þá kölluðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim úr angist þeirra, kom þeim á réttan veg. 20 Hann sendi út orð sitt og læknaði þá, hreif þá frá dyrum dauðans. 21 Ó, menn þessir vildu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans dásemdarverk! 22 Þeir þakki honum heilshugar og kunngjöri verk hans með gleði.

23 Og svo eru þeir sem sigla um höfin, kaupmenn sem flytja vörur milli landa. 24 Einnig þeir reyna máttarverk Drottins. 25 Hann kallar á storminn og lætur öldurnar rísa. 26 Skipin sveiflast til himins og hverfa í öldudali öllum um borð fellst hugur í neyðinni. 27 Þeir ramba og skjögra eins og drukknir menn og vita ekki sitt rjúkandi ráð. 28 Þá hrópa þeir til Drottins í neyð sinni og hann frelsar þá. 29 Hann kyrrir bæði sjó og vind. 30 Hvílík blessun höfn og njóta lognsins! 31 Ó, þessir menn vildu þakka Drottni miskunn hans og öll hans dásemdarverk. 32 Þeir lofi hann upphátt í söfnuðinum og í áheyrn leiðtoga Ísraels.

33 Hann þurrkar upp fljótin 34 og gerir land óguðlegra skorpinni saltsléttu. 35 En hann kann líka breyta auðninni í frjósama og vatnsríka vin. 36 Þangað leiðir hann hungraða sem setjast þar og byggja sér borgir, 37 í akra, gróðursetja víngarða og afla afurða. 38 Þannig blessar hann! Og þeir margfaldast stórum og fénaði þeirra fjölgar.

39 Sumir missa allt í ofsókn, þjáningu og sorg, 40 því Guð sendir hrokafullum skömm og lætur tignarmenn ráfa um í rústum, 41 en hann bjargar fátæklingum sem honum treysta, gefur þeim fjölda afkomenda og mikla hagsæld. 42 Þetta sjá hinir guðhræddu og þeir gleðjast, meðan óguðlegir þegja í skömm.

43 Þú sem ert vitur, hugleiddu þetta! Hugsaðu um miskunn og kærleika Drottins.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-