Publicidade

Salmos 119

1 Sælir eru þeir sem breyta í öllu eftir lögum Guðs. 2 Sælir eru þeir sem leita Guðs og gera vilja hans í hvívetna, 3 þeir sem hafna málamiðlun við hið illa og ganga heilshugar á Guðs vegum. 4 Þú, Drottinn, gafst okkur lög þín til þess við hlýddum þeim 5 ó, hve ég þrái breyta grandvarlega eftir þeim. 6 Þá verð ég ekki til skammar, heldur hef hreinan skjöld.

7 Ég vil þakka þér leiðsögn þína og réttláta ögun, það hefur kennt mér lifa lífinu rétt! 8 Ég vil vera þér hlýðinn! Og þá veit ég þú munt alls ekki yfirgefa mig.

9 Hvernig getur ungt fólk lifað hreinu lífi? Með því hlusta á orð þín og fara eftir þeim. 10 Ég leitaði þín af öllu hjarta láttu mig ekki villast burt frá boðum þínum. 11 Ég hef íhugað orð þín af kostgæfni og varðveitt þau í hjarta mínu svo þau verndi mig frá því syndga.

12 Lof þér Drottinn, kenndu mér lög þín. 13 Ég fer með lög þín upphátt 14 þau veita mér meiri gleði en mikil auðæfi.

15 Ég vil íhuga þau og hafa þau í heiðri. 16 Ég gleðst yfir þeim og gleymi þeim ekki.

17 Leyfðu mér lifa langa ævi, og læra hlýða þér meir og meir. 18 Opnaðu augu mín svo ég sjái dásemdirnar í orði þínu. 19 Ég er pílagrímur hér á jörðu mikið vantar mig leiðsögn! Boðorð þín eru mér bæði leiðsögn og kort! 20 Ég þrái fyrirmæli þín meira en orð lýst!

21 Ávítaðu þá sem hafna boðum þínum. Þeir hafa kallað bölvun yfir sig. 22 Láttu það ekki viðgangast þeir spotti mig fyrir hlýða þér. 23 Jafnvel þjóðhöfðingjar hallmæla mér, en samt vil ég halda lög þín. 24 Lögmál þitt er mér bæði ljós og leiðsögn.

25 Ég er bugaður maður, alveg kominn á kné. Lífgaðu mig með orði þínu! 26 Ég sagði þér áform mín og þú svaraðir mér. Skýrðu fyrir mér leiðsögn þína, 27 svo ég skilji hvað þú vilt og upplifi dásemdir þínar.

28 Ég græt af hryggð, hjarta mitt er bugað af sorg. Uppörvaðu mig og lífga með orðum þínum. 29,30 Leiddu mig burt frá öllu illu. Hjálpaðu mér, óverðugum, hlýða lögum þínum, því ég hef valið gera rétt. 31 Ég held mér við boðorð þín og hlýði þeim vandlega. Drottinn, forðaðu mér frá öllu rugli. 32 Ég vil kappkosta fara eftir lögum þínum, því þú hefur gert mig glaðan í sinni.

33,34 Segðu mér, Drottinn, hvað mér ber gera og þá mun ég gera það. Ég vil hlýða þér af heilum hug svo lengi sem ég lifi. 35 Ó, leiddu mig um réttan veg, því hvað er betra en það?!

36 Gefðu ég hlýði reglum þínum, en leiti ekki eftir rangfengnum gróða. 37 Snúðu huga mínum frá öllu öðru en því fylgja þér. Lífgaðu mig, hresstu mig, svo ég geti horft til þín.

38 Minntu mig á það aftur og aftur fyrirheit þín gilda fyrir mig! , ég treysti þér, heiðra þig og óttast!

39 Þaggaðu niður háðið og spottið sem beint er mér, því lög þín eru góð og þeim fylgi ég. 40 Ég þrái hlýða þeim. Þess vegna, Drottinn, lífgaðu mig við!

41 Þú lofaðir frelsa mig! Miskunna mér í kærleika þínum, 42 og þá mun ég geta svarað þeim sem spotta mig, því orðum þínum treysti ég.

43 Gef ég gleymi aldrei orðum þínum og treysti alltaf þínum réttláta úrskurði. 44-46 Þess vegna vil ég hlýða þér um aldur og ævi og njóta þess frelsis sem lög þín veita. Ég mun fræða konunga um gildi þeirra og þeir munu hlusta af áhuga og virðingu.

47 Ég elska lög þín! Ég gleðst yfir boðum þínum! 48 Komið, komið til mín!" segi ég við þau; því ég elska þau og þrái íhuga þau.

49,50 Drottinn, gleymdu ekki fyrirheitum þeim sem þú gafst mér, þjóni þínum, þau eru það sem ég treysti á. Þau eru styrkur minn þegar á móti blæs þau hressa mig og lífga! 51 Ofstopamenn spotta mig fyrir hlýðni mína við Guð, en ég læt ekki haggast. 52 Allt frá því ég var barn hef ég leitast við hlýða þér, orð þín hafa verið mér huggun.

53 Ég reiðist hinum óguðlegu, þeim sem hafna og fyrirlíta lög þín. 54 Því þessi lög hafa verið uppspretta gleði minnar alla ævi. 55 Um nætur hugsa ég til þín Drottinn og minnist laga þinna. 56 Það hefur veitt mér mikla blessun halda fyrirmæli þín.

57 Drottinn, þú ert minn og ég hef ákveðið hlýða orðum þínum. 58 Ég þrái blessun þína af öllu hjarta. Miskunna mér eins og þú lofaðir mér. 59,60 Þegar ég ég var á rangri leið, snéri ég við og flýtti mér aftur til þín. 61 Óguðlegir menn hafa reynt tæla mig til syndar, en ég er staðráðinn í hlýða lögum þínum.

62 Um miðnætti rís ég upp og þakka þér þín réttlátu ákvæði.

63 er bróðir minn sem óttast og treystir Drottni og hlýðir orðum hans. 64 Ó, Drottinn, jörðin er full af miskunn þinni! Kenndu mér lög þín!

65 Drottinn, blessun þín umlykur mig, eins og þú hafðir lofað mér. 66 Kenndu mér góð hyggindi og þekkingu, því lög þín vísa mér veginn. 67 Áður var ég reikull, þar til þú refsaðir mér, en hlýði ég þér með glöðu geði. 68 Þú ert góður og gerir aðeins gott, hjálpaðu mér fylgja leiðsögn þinni.

69 Ofstopamenn hafa spunnið upp lygar um mig, en málið er, ég hlýði lögum þínum af öllu hjarta. 70 Þeir eru tilfinningalausir, skilja ekkert, en ég elska þig og fylgi orðum þínum.

71,72 Hirting þín var það besta sem fyrir mig gat komið, því hún beindi augum mínum lögum þínum. Lög þín eru mér meira virði en hrúgur af gulli og silfri!

73 Þú, Drottinn, ert skapari minn, gefðu mér vit til halda lög þín. 74 Allir þeir sem óttast og elska þig, taka mér vel, þeir sjá einnig ég treysti orðum þínum.

75-77 Ég veit, Drottinn, ákvarðanir þínar eru réttar og úrskurðir þínir gerðu mér gott. Huggaðu mig með miskunn þinni, eins og þú lofaðir mér. Umvef mig náð þinni svo ég haldi lífi. Lög þín eru unun mín.

78 Lát hina stoltu verða til skammar, þá sem beita mig brögðum. En ég vil íhuga fyrirmæli þín.

79 Láttu þá sem treysta þér, þá sem heiðra þig, koma til mín og við munum ræða lög þín. 80 Gefðu mér náð til þóknast vilja þínum svo ég verði aldrei til skammar.

81 Ég þrái hjálp þína af öllu hjarta! Þú lofaðir hjálpa mér! 82 Ég einblíni á þig, bíð eftir því sjá loforð þitt rætast.

Hvenær ætlar þú hugga mig með hjálp þinni? 83 Ég er eins og hrukkóttur vínbelgur, skorpinn af reyk, uppgefinn af bíða. Samt held ég fast við lög þín og hlýði þeim. 84 Hve lengi verð ég bíða þess þú refsir ofsækjendum mínum? 85,86 Ofstopamenn sem hata sannleika þinn og lög hafa grafið mér gryfju. Lygi þeirra hefur komið mér í mikinn vanda. Þú elskar sannleikann, hjálpaðu mér! 87 Þeir höfðu næstum gert út af við mig, en ég neitaði láta undan og óhlýðnast lögum þínum. 88 Láttu mig halda lífi sakir miskunnar þinnar og ég mun halda áfram fara eftir boðum þínum.

89 Drottinn, á himnum stendur orð þitt óhaggað um eilífð.

90,91 Trúfesti þín nær frá kynslóð til kynslóðar, hún stendur óhögguð eins og jörðin sem þú hefur skapað. Hún varir samkvæmt orðum þínum. Allir hlutir lúta þér.

92 Ég hefði örvænt og farist ef lögmál þitt hefði ekki verið unun mín. 93 Ég mun aldrei yfirgefa lög þín, í þeim fann ég lífsgleði og góða heilsu. 94 Ég tilheyri þér! Ég bið þig, varðveittu mig! Ég vil breyta eftir orðum þínum. 95 Óguðlegir bíða færis til drepa, en ég íhuga loforð þín og reglur.

96 Ekkert er fullkomið í þessum heimi nema eitt orð þín. 97 Ég elska þau! Ég íhuga þau liðlangan daginn. 98 Þau hafa gert mig vitrari en óvini mína, veitt mér leiðsögn gegnum lífið. 99 Ég er orðinn hyggnari en allir kennarar mínir, því ég íhuga reglur þínar, 100 skynsamari en öldungar, því ég held fyrirmæli þín.

101 Ég hef hafnað vegum illskunnar, því ég vil vera hlýðinn orðum þínum. 102,103 Ekki hef ég snúið baki við fyrirmælum þínum; orð þín eru sætari en hunang! 104 Orð þín ein veita mér skilning og vísdóm, er þá nokkur hissa þótt ég hati lygina?

105 Þitt orð er lampi fóta minna, ljós á vegum mínum. Það forðar mér frá hrösun. 106 Ég hef sagt það áður og segi enn: Ég vil hlýða lögum þínum, þau eru yndisleg!"

107 Óvinum mínum hefur næstum tekist koma mér á kné, frelsaðu mig eins og þú lofaðir mér! 108 Hlustaðu á þakkargjörð mína og kenndu mér vilja þinn. 109 Líf mitt hangir á bláþræði, samt vil ég ekki óhlýðnast boðum þínum. 110 Illmenni hafa lagt gildrur fyrir mig, en ég mun ekki víkja af þínum vegi. 111 Lög þín eru það besta sem ég á! Þau eru fjársjóður minn og endast mér eilífu! 112 Ég er ákveðinn í hlýða þér allt þar til ég dey.

113 Þeir finnst mér andstyggilegir sem haltra til beggja hliða þeir sem ófúsir eru hlýða þér. Mitt val er klárt: Ég elska boðorð þín. 114 Þú ert skjól mitt og skjöldur og ég treysti orðum þínum. 115 Burt frá mér, þið illgjörðamenn! Reynið ekki mig til óhlýðnast boðorðum Guðs. 116 Drottinn, þú lofaðir halda í mér lífinu. Láttu engan geta sagt þú hafir brugðist mér. 117 Hjálpaðu mér svo ég megi frelsast og halda áfram íhuga orðin þín.

118 Þú snýrð þér frá þeim sem afneita lögum þínum. Þeir verða sjálfum sér til skammar. 119 Illgjörðamennirnir eru eins og sorp í þínum augum. Ég vil ekki vera einn af þeim, og þess vegna elska ég þig og hlýði lögum þínum. 120 Ég skelf af hræðslu við þig; óttast þú dæmir mig sekan.

121 Ofursel mig ekki duttlungum óvina minna, því ég hef iðkað réttlæti og verið heiðarlegur í öllu. 122 Lofaðu mér einu: blessa mig! Láttu ekki hina hrokafullu kúga mig. 123 Ó, Drottinn, hvenær ætlar þú efna loforð þitt og frelsa mig? 124 Drottinn, gerðu við mig eftir gæsku þinni og kenndu mér, þjóni þínum, hlýðni. 125 Ég er þjónn þinn, gefðu mér því vit til fara eftir reglum þínum í öllu sem ég geri.

126 Drottinn, láttu til skarar skríða! Þessi illmenni hafa brotið lög þín. 127 Ég elska boðorð þín meira en skíra gull! 128 Öll eru þau réttlát, boðorð Guðs, sama um hvað þau fjalla. Aðrar reglur vil ég ekki sjá.

129 Lögmál þitt er yndislegt! Er einhver hissa á ég vilji hlýða því? 130 Þú útskýrir fyrir okkur orð þín og jafnvel einfeldningurinn skilur þau. 131 Orð þín vekja áhuga minn, ég hlusta á þau með opnum munni!

132 Komdu og miskunnaðu mér, eins og öðrum þeim sem elska þig. 133 Leiðbeindu mér með lögum þínum, svo hið illa nái ekki tökum á mér. 134 Bjargaðu mér úr klóm vondra manna svo ég geti farið eftir fyrirmælum þínum. 135 Líttu til mín í náð þinni og kenndu mér lög þín. 136 Ég græt því lög þín eru fótum troðin.

137 Drottinn, þú ert réttvís og refsing þín sanngjörn. 138 Skipanir þínar góðar og réttlátar. 139 Ég er í uppnámi og reiðin sýður í mér, því óvinir mínir hafa forsmáð lög þín. 140 Ég hef séð orð þín eru sönn og hrein, og þess vegna elska ég þau! 141 Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn en boðorðum þínum hef ég ekki gleymt.

142 Réttlæti þitt varir eilífu, og lög þín eru byggð á trúfesti. 143 Boðorð þín eru huggun mín í andstreymi og neyð. 144 Lög þín eru réttlát í öllum greinum. Hjálpaðu mér skilja þau svo ég haldi lífi.

145 Ég ákalla þig af öllu hjarta! Bænheyrðu mig, Drottinn! Þá mun ég hlýða lögum þínum. 146 Bjargaðu mér!" hrópa ég, svo ég geti hlýtt þér." 147 Fyrir sólarupprás var ég á fótum, ég bað til þín og beið svars. 148 , ég vaki um nætur og íhuga fyrirheit þín. 149 Hlustaðu á bæn mína og miskunna mér, bjargaðu lífi mínu eins og þú hefur heitið mér.

150 koma illmennin, gera þau árás! Orð þitt þekkja þeir ekki, nei alls ekki. 151 En þú Drottinn ert mér nærri, í trúfesti eru orð þín sögð. 152 Ég heyrði orð þín í bernsku og veit þau breytast ekki.

153 Líttu á sorg mína og bjargaðu mér, því boðum þínum hef ég hlýtt. 154 , frelsaðu mig frá dauða samkvæmt orði þínu. 155 Óguðlegir munu ekki frelsast því þeim er sama um boðorð þín. 156 Drottinn, mikil er miskunn þín, bjargaðu lífi mínu!

157 Margir eru óvinir mínir og fjendur, en frá reglum þínum hvika ég ekki. 158 Þarna eru svikararnir mér býður við þeim! Þeim er alveg sama um orð þitt. 159 Drottinn, það skaltu vita, ég elska boðorð þín. Miskunnaðu mér og leyfðu mér halda lífi og heilsu. 160 Trúfestin er rauði þráðurinn í orðum þínum og reglur þínar vara eilífu.

161 Höfðingjar ofsækja mig án saka, hvað geri ég? skoða lög þín með lotningu! 162 Ég fagna yfir lögum þínum eins fundnum fjársjóði. 163 Ég hata lygi og fals, en elska lög þín. 164 Sjö sinnum á dag lofa ég þig vegna þinna réttlátu ákvæða.

165 Þeir sem elska lögmál þitt eiga frið í hjarta og er ekki hætt við hrösun. 166 Drottinn, ég þrái hjálp þína og þess vegna hlýði ég boðum þínum. 167,168 Ég hef leitað og gætt boðorða þinna og elska þau af öllu hjarta. Þetta veistu, því allt sem ég geri þekkir þú til fulls.

169 Drottinn, heyr þú hróp mitt og gefðu mér skilning á orði þínu. 170 Hlusta á bænir mínar og frelsaðu mig eins og þú lofaðir mér. 171 Ég vegsama þig því þú kenndir mér boðorð þín. 172 Efni þeirra er lofgjörð mín, öll eru þau réttlát. 173 Veittu mér lið þegar ég þarfnast hjálpar, því ég hef kosið hlýða þér. 174 Ó, Drottinn, ég þrái hjálpræði þitt og lög þín elska ég! 175 Láttu sál mína lifa svo ég geti lofað þig og orð þín styðja mig á göngu lífsins.

176 Ég villist eins og týndur sauður, leitaðu mín, því boðorðum þínum hef ég ekki gleymt.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-